Hnefaleikakappanum Mike Tyson, hefur verið neitað um hnefaleikaleyfi í Nevada í Bandaríkjunum. Ákvörðunin var tekin í nótt eftir þriggja tíma málaferli í Las Vegas og samþykktu íþróttamálayfirvöld í Nevada að neita Tyson um leyfið með fjórum atkvæðum gegn einu. Þetta varpar efasemdum á hvort Tyson geti keppt við Lennox Lewis um heimsmeistaratitilinn en fyrirhugað var að halda keppnina þann 6. apríl í Las Vegas.