Únglingurinn í skóginum (Halldór Kiljan Laxnes) Mig dreymdi ég geingi útí skóg einsog í fyrra þegar ég gekk útí skóg með stöllu minni; og stóð ein í rjóðrinu við lækinn. Og þá kemur únglíngurinn í skóginum með úngan teinúng í hendi, klæddur skikkju ofinni úr laufum. Og hann hleypur frammá bakkann, lýtur niðrað læknum, eys upp vatni í lófa sér, þeytir á loft og seigir: (Hann: ) Eia! Eia perlur! Eia gimsteinar! Eia leikur leikur í sólskini útí skógi! Hvert fór skógurinn, kysti animónur og hló,...