Halló. Nýlega hef ég byrjað að borða mjög hollt til að grennast og tóna mig verulega til. Ég hef verið að skokka í sundlaugina (1km) og syndi 2km á hverjum degi í um það bil mánuð. Mig langar, hægt og rólega, að byrja að auka æfingarnar og fara í ræktina eða eitthvað því um líkt. Vandamálið er að ég hef ekki nógu mikla orku í þetta og mig langar í eitthvað sem ; hjálpar mér að brenna hraðar, gefur mér kick og orku og byggir upp vöðvana. Ég er noob þannig að ég veit ekki hvað er best að nota...