Góðan dag. Ég er tvítug stelpa og á kærasta sem er 2 árum eldri en ég. Sambandið okkar er fínt, allavega er ég hamingjusöm og hélt að kærastinn minn væri það líka. Við höfum verið saman núna í 3 ár. Núna um daginn fór í ég fartölvuna hjá kærastanum mínum og sá að hann hafði verið inni á einkamál.is að leita sér að karlmanni til að hitta. Þar kom fram að hann væri tvíkynhneigður og væri að leita sér að skyndikynnum með öðrum karlmanni. Það hrundi allt niður hja mér.. ég trúði þessu ekki. Hvað...