Kisinn okkar Danni týndist frá heimili sínu (Austurtúni á Álftanesi) í byrjun febrúar. Danni er rúmlega 1 árs, hann er hvítur með grábröndótt á hausnum niður á vinstri kinn og grábröndótta bletti sums staðar á búknum. Hann er frekar mjór og langur og hægra augað virðist minna en það vinstra. Danni er mjög gæfur, hann malar mikið og elskar að láta klappa sér. Danni sást síðast í byrjun febrúar vera að sniglast í kringum sendiferðabíl hjá heimili sínu. Hann hefur hugsanlega laumast upp í hann...