Bjarni Skúlason var að ljúka keppni á HM í júdó sem fram fer í Osaka í Japan. Hann mætti Wu frá Taiwan í fyrstu umferð. Bjarni kastaði honum á Ura-nage eftir rúmar 4 mín og fékk ippon fyrir. Í 2. umferð mætti hann Pereteyko frá Uzbekistan. Bjarni kláraði þá glímu á innan við 1 mín með Kosoto-gake og fékk ippon fyrir. Í þriðju umferð fékk Bjarni silfurverðlaunahafa frá síðasta HM, Zviadauri frá Georgiu. Bjarni tapaði þeirri glímu, var kastað á Kata-guruma eftir rúmlega 3 mín. Zviadauri komst...