20.5.03 Ég held nú ekki að þessar rússnesku séu að dansa! Æfingin hjá þeim var alveg útúr kortinu. Hér gekk sú saga í gær að önnur þeirra (þessi dökkhærða) réði ekki við háu nóturnar og í raun myndi bakraddasöngkonan syngja fyrir hana. Það var semsagt búið að kanna hvort þetta mætti og það er víst allt í lagi. Einhver smá Milli Vanilli í þessu öllu. En þær vekja athygli. Ótrúlegt að sjá hrúgu af blaðamönnum horfa á þær að borða eitthvað svína-karboaði. Ég held að ég taki undir með Gísla að...