Jæja, núna er tími til kominn að setja upp Linux… :) Hins vegar langar mig að bera undir ykkur hvernig ég hef hugsað mér að gera það, þar sem þetta er í fyrsta skiptið sem ég set upp Linux….er að ná í 7.2 núna. Ég er með Windows 2000 Pro á C:, svo er ég með annan disk sem er skipt niður í 2 partition, eitt sem er ætlað fyrir Linux (F:), 2 gíg, og annað fyrir allskonar krapp (G:). Er ekki bara málið að setja upp Workstation á F: og ræsa svo Linux með boot diskettu, eða er einhver önnur leið...