Ég ætla að segja ykkur aðeins frá henni Tínu minni. Hún er 3 ára Rough Collie tík, fædd 9. janúar 2000. Hún er alveg æðislega skemmtileg, getur verið óþekk, en oftast svona skemmtilega óþekk. T.d. þá hleypur hún stundum frá manni þegar ég fer með hana útí garð, hleypur hún þá aðeins nokkra hringi í kringum húsið og kemur svo til mín, en lætur mig ekki ná sér, svo hleypur hún aftur í burtu en kemur svo á endanum. Ég er svona í því að kenna henni ýmislegt núna, er búin að kenna henni að...