Nú hef ég verið að flakka fram og tilbaka á þessu blessaða neti í einhvern tíma, margt tilgangslaust og margt bara mjög sniðugt. Einn daginn þá rakst ég á síðu þar sem fólk allstaðar í heiminum er að leita eftir hjálp við allskonar forritunar og hönnunar verkefni. Ferlið gengur til dæmis fyrir sig þannig að manneskja frá Englandi vantar nýjan ‘banner’ fyrir heimasíðu, hann/hún skrifar verklýsingu um hvað honum/henni vantar, hvað hann/hún er tilbúin að borga fyrir verkefnið og hversu langan...