Ég hafna algjörlega þessari staðhæfingu þinni að fyrst þetta hafi þróast svona þá sé þetta frá náttúrunni komið og ekki okkar að fordæma það sem kynjamisrétti. Hugtakið “mannlegt eðli” er allt of mikið notað til að útskýra hegðun fólks, ekki síst ef hún á sér langa hefð. En sannleikurinn er sá að við höfum ákveðnar frumþarfir, eins og til að næra okkur, sofa, stunda kynlíf, losa úrgang. Það skýrir það af hverju við þurfum á þessu að halda, en allar hefðir í kringum þetta (þeas borða með hníf...