Á menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst verða haldnir tónleikar í bílskúrnum heima hjá mér (rauða húsið efst í Ingólfsstræti). Það er bílskúrinn sem hávaðinn sem þú heyrir þegar þú ferð í Bónus Hallveigarstíg kemur frá. Þar æfa þrjár hljómsveitir eins og er (Logn, B3 og ein í viðbót, sem hefur ekki hlotið nafn). Stóra hurðin við götuna verður opnuð og jafnvel, ef veður verður ágætt, þá spilum við kannski á gangstéttinni fyrir framan. Þetta er í fimmta eða sjötta og jafnframt síðasta skipti...