Hæhæ hugarar og gleðilegt nýtt ár! Ég hef verið að velta fyrir mér öllum aukahlutunum sem skipta máli svo sem hálsmenum, eyrnalokkum, hringjum, armböndum, ökklaböndum. beltum, veskjum já bara öllu þessu glingri sem erum að skreyta okkur með. kannski erum við eins og skreytt jólatré ef við erum að nota þetta allt í einu. Líka ef þú ert í flegnum bol finnst mér flottast að vera með áberandi hálsmen við. Mér finnst flott að vera með eyrnalokka, lafandi eða litla lokka eins og demanta við...