Hvað er að Radíó X? Þetta hefur fólk á Huga velt fyrir sér síðustu misserin. Fyrst kvörtuðu menn yfir Þossa greyinu, en þegar hann var rekinn fylltust allt í einu allir miklum söknuðu. Þá var farið að sparka í eitthvað stelpugrey sem tók við sökkvandi skipinu. En hvað er svo að Radíó X? Einu sinni var þetta góð stöð, segja þeir elstu í hópnum og hverfa aftur í huganum til 1997, eða hvenær sem það var. Leið X-ins til helvítis hófst þegar Ameríkanarnir tóku stöðina yfir og gerðu hana að...