Það var ekki enn kominn föstudagur, stundum held ég að hann komi aldrei. Ég vinn á fimmtudögum, afgreiði sömu manneskjuna aftur og aftur í nokkra klukkutíma. Reyndar er ég ekki á kassa á fimmtudögum, en þá daga sem að ég afgreiði á kassa þá finnst mér ég afgreiða sömu manneskjuna allan tímann. Ég veit hvað þú ert að hugsa, ég veit hvað þið eruð öll að hugsa. Þú hugsar að hann hlakki til föstudagana af því að þá getur hann farið að ‘djamma’. Drukkið sig fullann ásamt hópum af ókunnugu fólki,...