Í útilegunni verður boðið uppá þrjár gönguferðir á laugardegi sem þátttakendur geta skellt sér í. 1. Uppá Skeggja. 2. Inn í Innstadal. 3. Ganga inn í Reykjadal þar sem hægt er að fara í bað. Grillað verður á laugardagskvöldi en hver og einn kemur með eigin mat til að setja á grillið. Á sunnudegi verður útilegunni lokað með hinu árlega Vörðuhlaupi og fer sigurvegari hlaupsins heim með farandbikar Vörðuhlaupsins. Kostnaður útilegunnar er 1500 kr. á mann. Skráning fer fram á e-mailinu:...