Það er í raun ótal margt sem að er skrýtið við heiminn og enn fleira sem er í raun ofar okkar svo mjög takmarkaða skilningi. Það tæki mig eflaust mikið meira ritpláss að gera því öllu skil en það alfurðulegasta og mest spennandi að velta fyrir sér er að sjálfsögðu við sjálf. Við, maðurinn, drottnari jarðarinnar og þar fram eftir götunum. Það sem gerir manninn svona sérstakan er nú ekkert nýtt og áreiðanlega margir búnir að reyna að útskýra allt sem okkur viðkemur á missniðugan hátt. Allskyns...