Amma Lítil stúlka í faðmi mömmu Glitra má sjá í tár Grætur, syrgir, saknar ömmu Í hjartað var komið sár Lífið er eins og lítið lag Sem fæðist, lifir og deyr Hún amma var að kveðja í dag Lagið hennar var víst ekki meir Margar góðar minningar vakna Á meðan hún var með okkur hér En ávalt mun ég ömmu sakna Hugsa ég með mér. Heiðdís Haukdal