Götuboltamótið 305 verður haldið næstu helgi á Miklatúni. Götubolti er bein þýðing á “Streetball” sem að sjálfsögðu er körfubolti ef einhverjir eru í vafa. Búið er að standsetja völlinn þannig að aðstæður eru eins og best verður á kosið og allar körfur í hæðinni 305. Keppt er á 4 körfur samtímis, þannig að 8 lið geta keppt á sama tíma. Mótið hefst kl. 10:00 og stendur fram eftir degi laugardaginn 26. águst og höfum við sunnudaginn uppá að hlaupa til vonar og vara ef fárviðri geisar á...