Jæja sælt veri fólkið… Þá er að koma þessu hobbyi úr dvalanum!! Ég er einmitt í smá vandræðum og vantar eiginlega pínu ráðgjöf! Þannig er mál með vaxti að ég verslaði mér íbúð í maí í fyrra (þá komin 8 og 1/2 mánuð á leið). Þarna rættist sko stóri draumurinn sem svo marga dreymir. Við skoðuðum margar íbúðir og við (ég, mamma og stjúpi) féllum öll fyrir þessari. Hún er tæplega 90 fm að stærð fyrir utan stóra og góða geymslu á neðri hæðinni. 1 stórt svefn herbergi og 2 lítil, stór og fín...