Ég og vinur minn ætlum að ferðast eftir næsta sumar og við vorum að pæla hvort að það væri hægt að fara til bandaríkjana og redda sér svo vinnu? Þarf maður ekki að fá vinnuleyfi eða eitthvað álíka? Er einhver með ráðlagnir?
Ég óska eftir húsnæði á Akureyri Ég óska annað hvort eftir herbergi á 20 þús eða minna á Akureyri eða tveggja herbergja íbúð á 40 þús eða minna. Við erum 17 og 18 ára stelpur sem göngum í Menntaskólann á Akureyri. Við erum reyklausar og snyrtilegar. Ef ég myndi finna mér herbergi þá myndi ég vera ein en ef íbúð þá myndum við leigja saman.
Mig bráðvantar einhverja pottþétta síðu til að finna crack .. Eða ef einhver gæti bent mér á hvar ég finn crack fyrir Monkey Island 3: The Curse of Monkey Island???
Ég var að fá iPod (video týpuna) og mig vantar codec-a í iTunes hjá mér .. allavega grunar mig það því að ég fæ ekkert hljóð á myndbönd sem ég er búinn að converta. Hvaða codec-a vantar mig og hvar fæ ég þá? Svo var ég líka að pæla hvernig ég set myndir inná iPodinn?
Ég á iPod(þessi með videodótinu) og ég var að fara að prófa að setja tónlistarmyndband og setti það inn í iTunes og convert-aði myndbandið. Svo prófaði ég að spila það en það kom ekkert hljóð þannig að ég tók iPodinn úr sambandi og prófaði að spila myndbandið í honum en það kom ekkert hljóð þá heldur. Þannig að ég var að pæla hvort að það væri aldrei hljóð? Sem er náttúrulega heimskulegt því að hvað hef ég að gera með 150 klukkutíma af myndböndum ef það er ekkert hljóð???
Nú á ég Trace-Elliot 7215, 300W 15 combo magnara og Fender Precision bass. Nú er ég að pæla í að skella mér á nýjan bassa en áður en ég vel þá var ég að pæla hvort einhver vissi fyrir víst með hvaða gerð þú myndir ná besta soundinu. Mér er sagt að maður nái ekki betra Fender soundi en með Trace Elliot. Er það satt? Er hægt að ná betra soundi úr Trace Elliot með öðrum bassa? ps. Þar sem að ég veit lítið um þetta þá væri gott ef svörin væru frá fólki sem veit eitthvað um þetta :)
Ég var að pæla í einu… Þegar ég er að spila aðeins á bassa í gegnum æfingarmagnarann og í headphone-a þá er náttúrulega oft gaman að spila með einhverri tónlist. Vandamálið er það að þegar ég er með bassann í headphone-um þá er vesen að hlusta á tónlistina líka. Þar af leiðandi var ég að pæla hvort það væri hægt að kaupa einhvernvegin snúru eða stykki svo ég geti tengt þetta saman í einn headphone… Ef það er hægt veit einhver hvar ég fæ svoleiðis græju?
Hérna nú er ég alveg dottinn út úr öllu svona… Hvaða forrit er málið þegar maður er að leitast eftir innanlands download-i? Er DC það eina eða er Limewire líka innanlands? Eða er Limewire kannski ekkert betra? Svo var ég líka að pæla hvort það væri einhver önnur síða til á borð við www.radioblogclub.com ? Svona þegar maður finnur ekki lagið sitt þar :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..