Það hefur nú verið staðfest að slökkviliðsmaðurinn sem slasaðist á brautinni er látinn. Hann var 31 árs. Slysið varð í stórum árekstri í annarri kryppu brautarinnar. Atburðurinn átti sér stað þegar H. H. Frentzen reyndi að fara fram úr Rubens Barrichello sem tókst ekki betur en svo að þeir lentu saman. Við það runnu þeir út af brautinni og tóku með sér Jarno Trulli og David Coulthard. Þá keyrði Pedro de la Rosa (Arrows) aftan á Jaguar bíl Johnny Herberts og gereyðilaggði afturhluta bílsins....