Yngri ár. Reese Witherspoon, eða Laura Jeanne Reese Witherspoon, fæddist í New Orleans. Móðir hennar er hjúkrunarkona og heitir Betty Reese. Faðir hennar er skurðlæknir og heitir John Witherspoon. Faðir hennar var í Bandarískahernum og vann í Wiesbaden í Þýskalandi, og bjó hún þar í fjögur ár þegar hún var lítil. Þegar hún flutti aftur til Bandaríkjanna eyddi hún miklum tíma sem barn og unglingur í Nashville, Tennessee. Hún á eldri bróður sem heitir John í höfuðið á pabba þeirra, hann vinnur...