Ok ég var svona að pæla það eru allir þessir þættir og auglýsingar þar sem verið er að fjalla um sumartískuna. Í einni auglýsingu var sagt að tískan í vor væri minipils, há stígvél og netabolir. Í annarri var sagt að sumar og haust tískan í ár væru röndótt föt, töskur, hattar og fleiri fylgihlutir. Í enn annarri er sumartískan skær föt og hermannaföt. Og í enn annarri bleik og fjólublá föt. Svo hvernig fötum ætlið þið að vera í? Tískan er mismunandi sem ég skil vel en hverju farið þið eftir?...