Nú blása ljóð.is og Edda-útgáfa til stórsóknar í ljóðabransanum. Í anda hins alræmda og ameríska Idols verður haldin stórkeppnin Skáldat 2004 í Tjarnarbíói á Menningarnótt, 21. ágúst stundvíslega kl. 20:00. Tilgangur keppninnar er að fá hin oft innhverfu og feimnu ljóðskáld til að tjá sig af fullum krafti og alvöru. Dæmt verður fyrir gæði ljóða til jafns við flutninginn sjálfan, og því er mikilvægt að skáldin leggi nokkra æfingu í flutninginn í stað þess að lesa upp beint af blaðinu....