Hæ, hæ öllsömul. Ég veit ekki hvort að ég er að senda þetta á réttan stað, en eitthvað verð ég að reyna því ég er í örgustu vandræðum. Málið er það að ég á von á enskri vinkonu minni í heimsókn eftir tæpa viku og planið er að fara eitthvað fínt út að borða a.m.k einu sinni. Vandamálið er semsagt það að þessi vinkona mín er grænmetisæta, og ekki nóg með það, heldur er hún mjög matvönd grænmetisæta!! Nú er ég búin að vera að skoða matseðla hjá flestum ,,fínni“ veitingahúsum borgarinnar og þar...