Ble… Mér datt í hug að setja hér inn smá fróðleik um loftkælingu þar sem hún er langsamlega einföldust og mest notuð í almennum tölvum. Ég hef mikið verið að kynna mér málið undanfarið og gert sjálfur miklar breytingar á kælingunni í tölvunni minni, árangurinn; kaldari og hljóðlátari tölva en fyrr. Hér á eftir fara nokkrir punktar um hvað hafa skal í huga þegar kemur að loftkælingu. 1.Samkvæmt lögmálum náttúrunnar er kalt loft þyngra en heitt loft og leitar því niður og þ.a.l. leitar heitt...