Þegar ég spilaði Metal Gear Solid fyrst kom það mér talsvert á óvart hversu ,,sjálfsmeðvitaður“ leikur hann er. Að sjálfsögðu tala þeir hreint út sagt um takka sem maður þarf að nota (eins og ,,notaðu kassa-takkann til að grípa…”) eins og margir leikir gera, en þeir tala líka oft eins og þeir viti alveg að þetta er bara leikur sem maður er að spila. Fyrsta dæmið um þetta er þegar maður á að hringja í Meryl - maður spyr manninn hvar maður fær númerið og hann svara að það sé aftan á hulstrinu...