Ég er með fimm húðflúr eftir fjóra húðflúrara sem ég hef verið að fá mér síðastliðin 6-7 ár. Ég ætla samt að byrja á að útskýra ástæðuna sem liggur að baki því að ég ákvað upphaflega að fá mér tattoo. Ég vildi eigna mér líkama minn, merkja hann, sýna að hann er mín eign og einskis annars og að enginn geti tekið það af mér. Fyrsta tattooið fékk ég mér rétt eftir 18 ára afmælið mitt haustið 2000. Ég fór eftir skóla á stofuna hans Helga (RIP), settist niður og blaðaði í gegnum möppur hjá honum...