- Hver er faðir þinn, hver er faðir þinn, æpti hann hástöfum. - Hann er dauður, hálviti. - Hvaða dónaskapur er þetta telpa, hver er faðir þinn. … Hleyp. Hleyp hraðar. Hleyp svo hratt, allt í móðu, speglunin. Burt. Burt frá veröldinni, hvar hún hefur gripið mig með soltnu augnarráði. Gripið mig unga, tekið mig og rifið niður í hyldýpi táranna. Afhverju. Afhverju, hugsa ég, afhverju fór hann. Pollur. Rigningin, það er rigning, það er alltaf rigning, hann fór. Ég sé hann, ég hleyp, hleyp hleyp,...