Ég var að velta fyrir mér hve oft þið baðið hundana ykkar. Ég er að fá Cavalier eins og hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum hérna ;-) Ég fór á Hundasnyrtistofa Sóleyjar, Dýrin mín stór og smá til að kaupa Solid Gold hundamat sem ku vera mjög gott og var sagt að Cavalier eigendur gefi það almennt. Hún benti mér á að kaupa svona pakka sem í er þurrsjampó, venjulegt sjampó, hárnæring, ilmvatn og einhver svona olía. Sem og ég gerði. Ég hef allstaðar lesið að það verði að bursta þá...