Ég ætla að segja ykkur smá reynslusögu af nágrönnum mínum. Þannig var það að um daginn var hringt í mig frá kattholti, konan sem talaði við mig sagði að þau væru með köttinn minn og spurðu hvort að ég vildi ekki koma að sækja hann, ég náttúrulega sagði bara: jú auðvitað kem strax. Þegar ég kom í kattholt og gerði grein fyrir mér sagði konan að þetta gerðu 3900 krónur, og ég bara :what!!! þrjúþúsund og níuhundruð krónur, fyrir hvað. ja.. það er föngunargjald og svo er það ein nótt hér í búri....