Margir sterkustu leikmanna Manchester United voru með í leiknum í kvöld, og þó svo að leikurinn hafi e.t.v. átt að heita vináttuleik, þá var hann það ekki. Henrik Larsson átti skalla í stöng á 25. mínútu, United brunaði í sókn, Beckham sendi fyrir, utan af hægri kantinum, og Silvestre. sem lék í kvöld í skyrtu nr. 9, skallaði í markið. Heimamenn voru vel studdir af 57.268 áhorfendum, þegar þeir reyndu að jafna. Sending Didier Agathe rataði fyrir fætur Larsson og síðar félaga hans í...