Markmið mín fyrir mitt fyrsta tímabil í Ensku Úrvalsdeildinni voru að ná að minnsta kosti 10 sæti með UEFA sæti sem aðalmarkmið. Síðan var markmið að vinna annaðhvort League Cup eða FA Cup, og að komast sem lengst í UEFA Cup. (ég komst í UEFA Cup með því að komast í úrslit í FA Cup þar sem Chelsea voru í Meistaradeildarsæti) Ég fékk 7,3 milljónir í leikmannakaup en það var tvöföldun á því sem ég fékk á síðasta ári. (3,6) Mér fannst að ég þyrfti að ná í einhvern góðan miðjumann í staðinn...