Það var langur laugardagur í byrjun nóvember og hún hafði ætlað að vera voðalega sniðug og klára jólagjafakaupin. Hún fann hinsvegar aðeins eina gjöf og það var fyrir aldraða móður hennar sem sat inni á elliheimili og kvartaði yfir hversu illa væri komið fram við hana. Fáir voru á ferðinni, rigningin var ekki freistandi til að vera úti í svo hún hlakkaði til að komast heim. En eins og auðvitað fór bíldruslan ekki í gang. ,,Ég tek bara strætó,” hugsaði hún. Maðurinn út á sjó og ekki vildi hún...