Haha jáá ég man núna að ég sá þig gefa upp meðaleinkunnina þína hér einhvers staðar. Og það rifjast kannski upp fyrir þér þegar ég segist hafa verið með 8,6 í meðaleinkunn og stærðfræðin var lægst, 7. :/ Ég er ennþá hundfúl yfir því, ég er náttúrlega í 10-unum í grunnskóla, easily, svo hef ég aldrei fengið undir 8 á neinum kaflaprófum í stæ í MR sko, stundum 9-ur og 9,6 t.d. Ég varð bara svo ofur stressuð í þessu fyrsta prófi og klúðraði öllu, jafnvel þótt ég hafi fengið 10 á æfingarprófi...