Ég skil að þeir sem eru með áráttu fyrir að leiða fólk að sannleikanum, kenna fólki, sýna fram á að það hafi rétt fyrir sér með sönnunum og rökræðum skuli ekki beint geta kyngt því þegar fólk segir bara “Nei, ég trúi á guð, þó ég hafi aldrei séð hann né hafi nokkra sönnun fyrir því”. Ég reyni nú samt að taka tillits til trúaðs fólks, ég tel mig ekki vera ein af þeim sem harðneitar því fyrir öðrum að guð sé til allavega.