Ég átti einungis við að í tilefni af jólabókaflóðinu sem er nú að hefjast væri gaman að heyra einhverja góða titla sem hægt væri að biðja um í jólagjöf í stað þess að fá fjölmarga krimma eins og vanalega. :) Annars takk fyrir ábendingarnar og sú seinni er einmitt bók sem mig langaði að lesa, var bara búin að gleyma nafninu, takk takk!
Hvað áttu við? Ef þú ert að reyna að benda mér á að þetta eigi að vera sitthvort orðið þá já, þú sökkar svona mikið. Ágætis- er eins og hálf- og uppáhalds-… Notað sem forskeyti.
Einmitt (: Þetta með munninn er t.d. eitthvað sem mér sjálfri var bent á þegar ég fór á myndlistarnámskeið einu sinni… ég hef alltaf átt erfitt með að teikna ekki of “fast”, of dökkar og skýrar línur og það má víst alls ekki í svona andlitsteikningum nema sé verið að teikna gat (t.d. á nefi eða eyra), annars er það eins og skurður. ;)
Já ég hef lítið skoðað á /myndlist áður en er búin að skrolla gegnum myndirnar og sjá hinar andlitsmyndirnar eftir þig… Sé miklar framfarir í hverri mynd meira að segja :)
Já heyrðu ég var einmitt að googla þetta, lítur vel út! En ertu með borð sem sést beint á skjánum það sem þú ert að teikna eða kemur það bara inn í tölvuna hjá þér? Því ef það er hið seinna þá get ég ekki séð að það sé mjög auðvelt í notkun :S en það venst sjálfsagt…
Haha þú heldur það já… Tja ég veit ekki hversu misvísandi merki ég hef verið að senda hérna en ég er ekki beint þessi “bold” manneskja í hugahözzlinu…;) Er ekki beint hrifin af því að hitta complete strangers af internetinu þú skilur… :$
Varúlfar, vampírur og uppvakningar hljómar vel, ásamt Alter-Ego sem einhver nefndi fyrir neðan, held það væri helvíti nett að annað hvort teikna sig á einhvern breyttan hátt (illan eða guðlegan, hvort sem er) eða sem dýr, það væri líka helvíti nett.
Haha æj… Allavega gott að heyra frá einhverjum utanaðkomandi að það sé þess virði að fara í MR - mér líkar allavega rosa vel þar og ef þú ert í stærðfræði í háskóla eins og þú segir (hm…sagðir það ekki við mig en á einhverjum “hjálp ég kann ekki stærðfræði” þræðinum á /skóli?) þá hefðiru örugglega haft gaman af því…stærðfræðin í MR er snilld. :P
Ég get séð að það eina sem er e-ð pínu að er kannski munnurinn, línan sem myndar efrivörina er of dökk og það virkar eins og skurður, ef þú skilur hvað ég á við… Svo eru nefin alltaf erfið :/ Annars bilaðslega flott, hvernig geriru þetta eiginlega…
Hahaha, svona svona ekki vera bitur út í MR-ingana, margir hverjir hafa unnið fyrir þessu. ;) Alls ekki að dæma fólk fyrirfram allavega ^^ Í hvaða skóla varst þú annars?
Hehe, ég er í MR… Og það vill svo til að ég er ekki nógu flink að bulla upp 15 mínútna fyrirlestur á klukkustund auk þess sem kennarinn hefur of mikið álit á mér og býst við of miklu af mér. :(
Pff, heyrðu ég hef nú ágætisástæðu fyrir að hanga inni á þessu ágæta laugardagskvöldi, jú fyrirlestrarskrif kallinn minn, fyrirlestrarskrif… Annars væri ég pottþétt í þessu klassefest sem er í gangi núna :(
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..