Tékkið á þessu… Útvarpsstöðin X-ið 977 heldur svokallað Jack Live kvöld á Gauknum á föstudagskvöldið. Þar koma fram: Maus - sem ætlar að frumflytja nokkur splúnkuný lög í bland við slagara af Musick. Úlpa - sem er ný komin heim eftir vel heppnað tónleikaferðalag um Danmörku og leikur efni af væntanlegri plötu. Mammút - sem kom sá og sigraði í Músíktilraunum 2004. Húsið opnar kl. 22 - aðgangseyrir er 800 kr.