Nú fara jólin að nálgast með öllu því tilstandi sem þeim jafnan fylgir. Á flestum heimilum fylgja ákveðnar hefðir jólunum. Þessi jól koma því til með að verða örlítið frábrugðin á mörgum heimilum, þar sem enga er rjúpuna að fá í ár. Sterk hefð er fyrir rjúpunni í jólamatinn hjá mörgum, og ég þekki fólk sem segir jólin ekki komin fyrr en rjúpnalyktin lætur á sér kræla. Mikil óánægja virðist vera yfir þeirri ákvörðun stjórnarinnar að setja veiðibann á rjúpuna. Ég persónulega finn ekki fyrir...