Eftirfarandi örsaga er af síðunni minni. ,,Góðan daginn, gerðu svo vel og fáðu þér sæti.“ ,,Takk.” ,,Þú ert sem sagt Garðar… Devereux? Er þetta franskt ættarnafn?“ ,,Já, pabbi er franskur.” ,,Núnú. Ég á frænda sem býr í Bordeaux. Skiptir ekki máli. Mamma þín sendi þig hingað til að tala aðeins við mig. Þú ert búinn að vera eitthvað svo leiður upp á síðkastið. Alveg hættur að taka þátt í íþróttatímunum og leikur þér ekkert við hina krakkana í frímínútum. Af hverju ekki?“ ,,Bara.” ,,Segðu mér...