Jæja, vegna skorts á áhugamáli til að senda þetta inná, fer þetta bara hingað. Landsmót skáta var haldið að Hömrum, Akureyri dagana 16.-23. júlí. Var það með eindæmum glæsilegt í alla staði. Ekki amalegt að tjalda svona úti í óspillti náttúrunni. Ja, reyndar var lítið um óspillta náttúru þarna, þar sem búið var að hreinlega rústa svæðinu til að geta haldið mótið. Mótssvæðið skartaði tilbúnum tjörnum, tilbúnum hólum og grasi sem var svo glænýtt að það þurfti að dreyfa heyi um svæðið þegar...