Það er þung loft í, að sögn margra, skítugu íbúðinni sem angar , einhverra hluta vegna, af blandaðri fúakollykt. Veggirnir í stofunni sem eiga að vera hvítir þyrfti að mála -að sögn margra. Ligg í sófannum inní stofu eftir enn annan leiðinlegan vinnudag. Er að hugsa eitthvað allt annað en það sem ég hafði ætlað mér og augnlokin eru eins og ég hafi verið að strompreykja reggíreyk. Klukkan er farinn langt yfir háttatíma sannkristins fólks og ég er að vorkenna sjálfum mér yfir því að ég skuli...