Ég hef lengi ætlað að skrifa grein um þetta, en hef aldrei lagt í það, en þar sem ég hef ekkert annað að gera akkúrat núna, og nenni ekki að fara að sofa, þá legg ég bara í greinina! Ég hef mjög mikinn áhuga á húðflúrum og götum, og býst við því að fá mér mörg af hvoru í framtíðinni, nú þegar er ég komin með átta göt í eyrun, búin að teygja eitt í 8mm, og líka komin með gat í nefið, og er nú þegar búin að ákveða tvö tattú og allavega þrjú göt. Ég les endalaust um húðflúr og götun, skoða...