Hef verið að safna kjark í að senda inn eitthvað af sögunum mínum, fer vonandi að verða aktívari. ————————————- ,,Mamma, þegar ég verð frísk, getum við þá málað herbergið mitt upp á nýtt? Eftir þessa spítalavist er ég búin að fá nóg af hvítum lit. Mig langar að mála herbergið mitt grænt, eða kannski blátt!” ,,Auðvitað getum við það, elskan, getum endurinnréttað í leiðinni.” Mæðgurnar sátu inni í hvítu herbergi. Stólarnir sem þær sátu á voru hvítir, rúmið var hvítt, gardínurnar voru hvítar,...