Sælir græjuhausar, ég stend í húsbyggingu og er að hanna lagnakerfi ásamt öðru. Þar sem hljómtæki skipta mig miklu máli ákvað ég að byrja á núllpunkti og miða lagnir ekki við þau tæki sem ég á í dag heldur við þau tæki sem ég ætla að nota til framtíðar, ég er nokkuð vel græjaður sem stendur, en hef hugsað mér að kaupa nýtt kerfi samt sem áður. Þar sem tími er af skornum skammti og þetta áhugamál mitt hefur verið í dvala undanfarin ár er ég ekki “up to date” í þessum málum, ég myndi glaður...