hvers vegna í andskotanum á maður að skammast sín? :D Þetta er bara einhver stelpukjáni að leika sér. Alltaf gaman að sjá einhverja íslendinga að hafa sig að fíflum :D
ég á ekki orð … veit nú ekki hvort sum þessara svara séu bara kaldhæðni en nottla fljótlegasta leiðin án þess að vera opna kassann og læti hefði bara verið að sækja forritið cpu-z (lítið ókeypis forrit sem keyrir í innra minni, krefst engrar uppsetningar) sem gefur þér helstu upplýsingar hvað móðurborðið, örgjörvann og vinnsluminnin þín varða…
Verð nú bara að segja eins og frægt er orðið; “DON'T BREAK THE LAW, ASSHOLE!!” Greinilega ástæða fyrir því að þeir óskuðu eftir þér, þar sem lítur út fyrir að þú sért á skrá hjá þeim.. Hefði nottla aldrei gerst af þú hefðir ekki brotið af þér í fyrsta skiptið.. En hvað veit ég :)
nei, ekki viss um hver söng inn á plötuna sjálfa, hvort hún hafi heitið Una Sveinbjarnardóttir, en Ragnheiður Gröndal sá um rödd á tónleikum hér heima fyrir og erlendis fyrir þessa plötu og söng inná þá næstu..
ég myndi frekar spyrja spurningar eins og “hver gefur besta grunninn?” frekar hver sé hátt metinn því sumir þeirra eru hreinlega ofmetnir! Ef ég gæti spólað tímann til baka þá færi ég persónulega í MH :)
já og það kallast venjulegur sími :) En annars dettur mér ekkert annað í hug nema þráðlaus heimasími … En ekki viss með þetta að færa þetta í gegnum tölvuna.
lágmark að slefa upp úr sér slóðina þessum höbb :p annars sé ekki betur en að þessi plebba höbb sé ekki búinn að vera með líf í að minnsta kosti 7 daga, redirectar traffíkinni annað…?
Ágæt grein: hlýtur að gagnast einhverjum hræðum … fannst hún frekar barnaleg í frásagnanda þegar ég las hana yfir. Gæti líka vel verið vegna þess að ég vann í svona búllu í yfir 5 ár þannig að ég kann þetta út og inn :p Talandi um jakkaföt annars. Kom við í BT kringlunni í dag og gat ekki annað en brosað þegar ég sá eitt sölumannsgreyið í gulum jakkafötum með bt mýs um sig allan! :D Djöfull vorkenndi ég honum, enda helvíti hallærislegur greyið :D Þetta minnti mig á grænu jakkafötin með öllum...
sölumaður í tölvuverslun. Varla framtíðarstarf. Kem til með að fara í háskólann.. Já, auðvitað nýtur maður þess í botn að fást við eitthvað sem maður hefur áhuga á.
þess mætti bæta við að búið er að hækka skjáina á myndinni og eru nú tvær raðir af fartölvum. Tæplega helmingi fleiri sem sagt.. Já fartölvur eru málið 8)
blessaður hlustaðu ekki á þennan vin þinn. Hann veit greinilega ekkert. Þessi kort eru oftast að fá mjög góða dóma og eru engu síðri en Asus, oft betri í performance af því sem ég hef verið að sjá. Hvað skjá varðar mæli ég með Samsung 913N, færð hann á ca. 30k. Þekki nú ekki mikið til þessara skjáa sem þú ert að spá í. Reyndar alveg nýir fyrir mér 0_o
skil ekki þetta helvítis væl í sumum. Mér finnst þessi mjög flottur. Hefðri reyndar viljað sömu týpu silfraðan en hann er víst uppseldur.. Fer nottla eftir mönnum líka … myndi ekki skella mér sjálfur á svona kassa en ef ég lendi í að setja saman tölvu fyrir einhvern (sem ég lendi í öðru hverju) sem ég þekki sem kunna ekkert endilega mikið þá lætur maður þau bara fá eitthvað svona skraut. Þau verða bara rosa hrifin og halda að þau séu að fá svaka mikið fyrir peninginn :) Væri meira fyrir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..