já, hægt að panta hann auðvitað í flestum betri tölvuverslunum í dag. Ekki viss með hvort hann sé kominn í einhverja búðina né hvenær hann komi í almennt búðir en myndi halda að til að byrja með sé hann einungis sérpöntunarvara þangað til verlanirnar sjá hvernig hann tekur við sé
nei, ekki heyrt um að þú þyrftir tvo slíka, nema um mjög stórt svæði væri að ræða .. þannig að ég er ekki viss hvað þeir eru að bulla. Prufaðu að hringja í aðra tölvuverslun á morgun og fáðu þeirra álit og spurðu hvort einn sé ekki nóg.
maybe so þá hafa þeir alveg farið framhjá MÉR :D En Office pakkinn kemur þó ALDREI á harða disknum nema hann sé keyptur aukalega og búið að setja hann upp fyrir viðkomandi sem kemur svo á eigin diski fyrir notandann :p
færð voða lítið í hendurnar því allir framleiðendur gera ráð fyrir að þú brennir recovery disk sjálfur fyrir tölvuna. Það eru aftur á móti ekki nema örfáir þeirra sem minna þig á að brenna slíkan þegar þú startar vélinni í fyrsta skipti.
ef hann er með repeater sem slíkan þá er nóg að staðsetja hann ca. miðsvæðis í húsinu, t.d. milli tölvu og routers, stinga í rafmagn og láta hann repeat-a merkinu áfram. Lesa bara svo bæklinginn sem fylgir ;)
held að loftnetið gangi ekki á mac mini að mér sýnist því skrúfgangurinn er ekki til staðar. sýnist þráðl. netkoritð algerlega innbyggt. En tékkaðu á þessum sendi: http://www.att.is/product_info.php?cPath=39_72&products_id=2223
ágætur pakki ef þú ert að spá í einhverju pakkatilboði en myndi þá persónulega hoppa á þennan pakka frekar og uppfæra skjákortið í 7600GS eða GT eftir hvað peningarnir leyfa. Hérna ertu þá allavega kominn í Dual Core hópinn ;)
borðtölva/fartölva? Ef borðtölva þá er nóg að kaupa bara sterkara loftnet fyrir hana. Ef þú vilt magnara þá ertu að leita að þráðlausum sendi (e. Access point) með repeat mode.
jújú, alveg hægt. Tölvan kemur í flestum tilfellum með að nota það kort sem sett er í vélina. Og nei, það er ekkert vesen :) Er sjálfur með Sound Blaster X-FI XtremeMusic sem ég er mjög sáttur með :)
ég hélt það fyrst en skv. umfjölluninni á kassanum eru þetta tvær 80mm en ekkert sem segir að ekki sé hægt að hafa 90 eða 120mm frekar sem ég myndi sjálfur kjósa :) Að öðru leiti þá er ein 120mm aftan á kassanum auðvitað ásamt einni 250mm á hlið kassans :)
Getur verið að fá fína tölvu, segjum t.d. X2 4800+, 2GB Dual DDR 400MHz, 320GB SATA II, NX7900GT 256MB fyir ca. -/+ 170 þús. ef þú vilt halda þig undir 200 kallinum.
jú, sami hluturinn :) Ætti kannski bara að halda mig við ensku orðin þar sem meirihlutinn kveikir ekkert á perunni hvað ísl. nöfnin á þessu dótaríi varðar :p
taktu þetta kvikindi: 19“ Acer 1951AS Gamers Edition Skothelt eintak. Kannski sleppur mismunurinn … fer eftir hvorn 19” Xeroxinn þú ert með, annars bara bæta upp í mismuninn, ekki svo mikill og bókað mál þess virði.
ég væri pissed ef ég væri þú :p Veit meira segja um einn sem er búinn að fara 3 fýluferðir og alltaf eftir sömu tegundinni, fattaði hann ekki heldur :p Skiptu yfir í almennilegan ViewSonic, Samsung eða Acer :)
uh, af hverju skiptirðu ekki útí aðra tegund? Annars sýnist mér þetta vera baklýsingin að klikka og það fellur auðvitað undir ábyrgð. Skiptu nú út í annað módel :p
http://www.dooyoo.es/monitores-crt/sony-hmd-a220/details/ Svona Ok túbu skjár en ekkert til að hrópa húrra fyrir, allra síst notaðan. Gæfi honum mesta lagi 2 stjörnur af fimm og það er aðallega fyrir að vera innbyggðan USB hub, en það getur maður hvorteðer keypt fyrir skitnar 2.500 kr.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..