Ég ákvað að skrifa þessa grein vegna þess að ég er farinn að hafa verulegar áhyggjur að þróun tónlistarinnar! Ég er enn frekar ungur að árum og er ekki langt síðan ég byrjaði að hlusta á tónlist að nokkru ráði. Nú er ég búinn að kaupa mér þónokkra diska og hlusta á þá. Ég byrjaði að kaupa mér nýlegar popp- og rokkplötur (samanber Creed, Staind, Metallica og Coldplay) fín tónlist og allt það. En síðan ég byrjaði að hlusta á eldra rokk (samanber Led Zeppelin, Meat Loaf, CCR, Dylan, Deep purple...