Litla stelpan gengur upp tröppurnar og inn í salinn. Það fyrsta sem hún sér eru þrír karlmenn sem standa við innganginn og horfa hunguðum augum á Nonnabátana sem hún heldur á. “Þeir bíða eftir þér”, segir einn þeirra um leið og hann tekur annan bátinn af henni. Litla stelpan flýtir sér úr jakkanum og inn í sal. Salurinn er fullur af karlmönnum sem sitja við átta borð með gosflösku í annarri hendinni og teninga í hinni. Flestir grúfa sig yfir blöð sem liggja fyrir framan þá og virðast ekki...